Góðan daginn.
Ég hafði skrifað hér helling um hvernig líf mitt hefur snúist um að fá dóttur mína aftur eftir að hafa ekki fengið að sjá hana síðustu 13 ár og ekkert fyrstu 2 árin heldur, þannig að ég hef ekki séð hana í 15 af hennar 18 árum þó svo þroflausar tilraunir, dómsúrskurður og fleira og fleira hafi komið fram sem segir að full umgengni ætti að eiga sér stað.
Eins og þið sjáið þá er allt það blogg farið héðan út, öll sagan um móður hennar og fjölskyldu var sett í "geymslu" vegna þess hve illa það virtist fara í dóttur mína sem tjáði sig lítillega og á neikvæða hátt varðandi þau skrif ... og mig almennt!!
Ég mun sjá hvort það mýki eitthvað ástandið að gera þetta, vona það svo sannarlega en held þí áfram að skrifa pælingar mínar varðandi hana og eitthvað um mitt daglega amstur inná milli.
Nú ef ekkert gerist í þessum málum mínum og hennar þá mun ég halda mínu striki og gera ALLT sem hægt er til að hún kynnist mér, ef það er með því að skrifa hér, þá verður svo að vera.
Hafið það sem best
Gunnar H.
Ps. Sandra, EF þú lest þetta, af hverju skrifarðu þá ekki það sem um mig hefur verið sagt sem veldur því að þú "hatar" mig eða heldur að ég sé eitthvað slæmur maður almennt???